Atburðarteljari

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur

23:02

24. janúar 2008 klukkan 23:02
Nú höfum við Leó sameinað krafta okkar á 123.is/Bibberina.

Bless og takk - ekkert snakk.

Anna Rán og Leó Logi.


Leó Logi Bond
Engin athugasemd

02:10

04. janúar 2008 klukkan 02:31
Gleðinleg jól og gott nýtt ár. Það er langt síðan að við skrifuðum síðast og mikið búið að gerast síðan. Við litla fjölskyldan erum flutt og bíðum bara eftir nýjum ferfættum fjölskyldumeðlimi, hvenær svo sem það verður, vonandi á þessu ári. Brosandi
Jólin okkar Leós voru voðalega fín. Vorum heima hjá Tuma og Bjartey á aðfangadag og hjá tengdó á um áramótin með ömmu Tótu líka. Það var voðlega ljúft, þó að ég hafi þurft að fara að vinna klukkan 1 þá nótt. Allir voðalega sáttir með sín jól. Auðvitað fékk Leó eitthvað smá í jólagjöf, hann fékk smá nammi í jólapoka frá Ingu Sigrúnu og strákonum sem var bara sætt og ótrúlega sætan anorakk frá Óskpósk. Svo fékk hann smá frá mér en ekketr frekar í jólagjöf en einhvað annað.. Galla, endurskinsmerki, pissubindi og ótrúlega mjúkt teppi. Kalla þetta bara nokkuð góðar jólagjafir, þegar verið er að tala um hund. Glottandi

Desembermyndir komnar.

Síðbúnar-jólakveðjur, Anna Rán og Leó Logi.
Leó Logi Bond
Engin athugasemd

15:16

25. september 2007 klukkan 15:15
baby
Leó Logi Bond
Engin athugasemd

15:30

17. ágúst 2007 klukkan 15:42
Erró fór fyrir 4 dögum. Leó aftur byrjaður að sofa allan daginn og gera ekki neitt. Fyrsta daginn eftir að Erró fór áttu þeir báðir rosalega bágt. Söknuðu hvors annars greinilega. Við söknum Erró líka svolítið, það var svo gaman að sjá þá saman, alltaf leikandi og alltaf með augun á hvor öðrum. Þeir urðu svakalegir vinir, sem var æði.

Núna erum við Leó bara búin að taka því rólega, erum búin að sitja úti á svölum og grípa sólina pínu. Fara í göngur og stússast. Brosandi

Anna Rán & Leó Logi.

Leó Logi Bond
Engin athugasemd

00:03

06. ágúst 2007 klukkan 00:22
Góða kvöldið. Enn gegnur allt rosalega vel hjá okkur. Strákarnir orðnir rosalega samrýmdir og greinilega hinir mestu mátar. Þeir verða eflaust voðalega eimanna þegar Erró fer. Hann á ennþá eina viku eftir hér, þannig við byrjum ekki að væla strax. Nema hann Erró, hann er svoddan vælukjói. Brosandi

Hann er algjörlega búin að taka upp mis-skemmtilegu leikhljóðin hans Leós. Núna veltast þeir um kvakandi eins og Andrés Önd.

Þeir borða báðir rosalega vel, sem mér finnst algert æði. Leó búin að skána rosalega eftir að ég setti fasta matartíma á ný, voru búnir að fjara svolítið út yfir sumarið. Kjánalegir vinnutímar og svona..

Þetta er samt búið að vera rosalega skemmtilegt, nema það að Leó á varla tíma aflögu fyrir mömmu sína, púhú. Honum finnst Erró mikið skemmtilegri, hef nær ekkert þurft að hafa afskipti af honum Lebba mínum.

*Er alltaf að bæta myndum inní Leó loga og Errós albúmið.


Anna Rán, Leó Logi & Erró.

http://www.rzuser.uni-heidelberg.de/~cstoy/fun/img/dog.gif


Leó Logi Bond
1 athugasemd

21:30

01. ágúst 2007 klukkan 21:45
Nýjar myndir í tveim albúmum, Júlí og Erró í pössun... Brosandi

Hér gengur allt ennþá eins og í sögu, leika mikið og sofa þess á milli. Borða báðir rosalega vel, sem mér finnst rosalega skemmtilegt þar sem að Lebbinn minn er svoddan gikkur.
Þeir glöddu mig samt ekki mikið þegar að þeir byrjuðu að leika sér klukkan fjögur í nótt, með tilheyrandi látum...

Núna leika þeir og leika og erum við að spá í að fara í smá göngutúr seinna í kvöld.


Stubbi sæti.


Þreyttir.


Flottasti.

Anna Rán, Leó Logi & Erró.


Leó Logi Bond
Engin athugasemd

17:09

30. júlí 2007 klukkan 17:30
Erró litli vinur okkar komin í heimsókn og ætlar að vera í pössun næstu 2 vikurnar, Erró er bara pínulítið hvolpakríli. Þeir strákar eru bara búnir að vera sætir í dag. Hafa leikið og sofið og drukkið eins og englar.

Eru núna steinrotaðir báðir tveir. Myndi koma með myndir en pabbi stal batteríonum úr myndavélinni.

Ætlum svo aðeins út á eftir og í smá stúss. Fá svo einhvað gott að borða.
Kannski pínu kjúlla.
Hlæjandi

Anna Rán, Leó Logi & Erró.
Myndir koma við tækifæri.

Leó Logi Bond
Engin athugasemd

20:02

29. júlí 2007 klukkan 20:20
Gott kvöld, sumarið okkar Leós er búið að vera frekar einleitt. Rosalega mikið bara í sólbaði úti á svölum og göngutúrar upp um fjöll og firnindi. Erum að vöðva okkur. Svalur

Annars er vinnan rosalega búin að setja sinn svip á sumarið þar sem verið er að safna fyrir mörgu. Bæði fyrir menn og dýr.

Um daginn fórum við aðeins austur og sváfum mest megnis, en gengum um svæðið hjá Gauju frænku. Andreu litlu fannst rosalega gaman að fá að halda í tauminn og hlaupa smá.



*Ný updeitað á undirsíðunni "Leó Logi".
*Nýjar myndir væntanlegar, langþráðar Kúbu-myndir + jól. (á bara eftir að finna rétta myndarvélarkortið)

Anna Rán & Leó Logi.
Leó Logi Bond
Engin athugasemd

01:53

21. júlí 2007 klukkan 01:54
Vildi bara segja að ég á besta og fallegasta hund í heimi!!
Leó Logi Bond
Engin athugasemd

00:34

30. apríl 2007 klukkan 00:37
Ætluðum bara að segja að það eru komnar nýjar myndir. Apríl myndir. Jóla myndir og Kúbu myndir frá mömmu koma seinna.

Gleðilegt sumar og góða nótt.


Sæti

Leó Logi Bond
Engin athugasemd